| |
|
Fyrir hverja er HVERT?
HVERT er ætlað þeim einstaklingum sem hafa horfið tímabundið út af vinnumarkaðnum eða úr námi sökum veikinda eða slysa og hafa áhuga á að leita aftur inn á vinnumarkaðinum. Þeir þurfa einnig að tilheyra heilsugæslustöð sem tekur þátt í verkefninu.
Þátttaka í HVERT er einstaklingsmiðuð. Fyrir utan þá vinnu sem einstaklingurinn vinnur með starfsfólki og fulltrúum HVERT, getur þátttakandinn á sama tíma tekið þátt í hinum ýmsu endurhæfingarúrræðum sem kunna að standa til boða í nærumhverfi. Heildræn eftirfylgd er í höndum verkefnisstjóra HVERT.
|