www.hvert.is Forsíða HVERT


 

Velkomin á heimasíðu HVERT!

HVERT er 3ja ára samstarfs- og rannsóknarverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins auk Salastöðvar, Vinnumálastofnunar, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Tryggingastofnunar.
Um er að ræða tímamótasamning sem felur í sér sameiginlega göngudeild þessara stofnanna, sem hófst 1. janúar 2008.

Markmið verkefnisins er að aðstoða fólk við að komast sem fyrst í vinnu og sporna gegn ótímabærri örorku. Verkefnið byggir á fortilraun á vegum Vinnumálastofnunar og Heilsugæslunnar árið 2006-2007.
Fortilraunin var tilnefnd til hvatningaverðlauna Öryrkjabandalags Íslands 2007.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessar opinberu stofnanir sem allar koma að málum einstaklings sem er að detta út af vinnumarkaði vegna veikinda eða slyss, vinna markvisst saman í þverfaglegri teymisvinnu á göngudeildarformi.

Fram að þessu hefur þverfaglegri starfsendurhæfingu verið beitt sem tímabundnu inngripi á endurhæfingarstofnunum. Lítið hefur farið fyrir markvissri, samhæfðri endurhæfingu með eftirfylgd til lengri tíma á göngudeildarformi, en það er mikilvægur þáttur HVERT.

Hér hefst ferlið hjá heilsugæslulækninum og einstaklingurinn útskrifast aftur til hans.
Ef erfiðleikar koma síðar upp hefur einstaklingur aðgang aftur inn í HVERT.


Tengiliðir

 

Heilsugæslan Heilsugæslan Salahverfi Vinnumálastofnun Reykjavíkurborg Tryggingarstofnun